Mar 21, 2009

Rólegheit

Allt gott að frétta héðan úr rólegheitunum.

Það er engin spurning að vorið er nánast komið hér í Danmörkunni.  Búið að vera upp undir 10° alla síðustu viku og menn hafa sest út í sólina .... í flíspeysunni ... og horft á vorlaukana sem eru komnir í ca. 15 cm hæð.  Annars hafa víst fæst orð minnsta ábyrgð því það á víst að kólna aftur í næstu viku en það verður nú vonandi sem minnst úr því.  Við erum sko alveg tilbúin að fá almennilegt vor - sem fyrst!

Við höfum bara verið mest hérna heima við og reynt að sinna skyldunum síðustu dagana.  Fórum reyndar í tvær góðar afmælisveislur um síðustu helgi þar sem við fengum hressilegan skammt af góðum kökum. Það besta var að veislurnar voru hvor á eftir annarri.  Fórum sem sagt fyrst kl. 13 í 5 ára prinsessuafmæli til Völu sem er dóttir eins skólafélaga Helga og svo beint þaðan til Jóns Freys sem var var víst aðeins meira en 5 ára!!! Helgi fékk að velja afmælisgjöfina hans Jóns Freys og auðvitað keypti hann fjarstýrða þyrlu.... en ekki hvað

Annars erum við Helgi bæði í ritgerðarskrifum þessa dagana. Helgi er að skila ritgerð um Heuristic algorithm of truckload bleeeeeeeeeee.... þetta er líklega eitt mest óspennandi ritgerðarefni sem ég hef kynnst og frekar ólíklegt að þetta eigi eftir að nýtast honum í framtíðinni. Í stuttu máli er hann að fjalla um og reikna út leiðarkerfi fyrir flutningabíla ....
Ég er bara að reyna að skrifa gengur hægt ......... en gengur þó!

Fannar Ingi er bara í leikskólanum að leika við íslensku börnin eins og venjulega, kemur svo heim og leikur við íslensku börnin eins og venjulega....
Jóel Kristinn er að undirbúa tvær sýningar. Á fimmtudaginn er sirkus hjá bekknum hans Jóels í SFO-inu og mun hann leika þar listir sínar sem einhvers konar bardagamaður - hann hefur það líklega frá Jóel frænda sínum (móðurbróður).  Á sunnudaginn eftir viku er svo lokasýning í fimleikunum eða springgymnastik.

Við eigum svo von á góðum gestum um páskana. Afi og amma á Selfossi munu mæta á svæðið og dekra við barnabörnin eins og venjulega ........... geri ég ráð fyrir :-)   

Sem sagt bara allt rólegt og gott hér í Viby,
Bestu kveðjur

Mar 9, 2009

Skemmtileg helgi að baki!

Það er víst komið nokkuð langt síðan fréttir af fjölskyldunni voru skrifaðar hér inn en það er kannski líka bara vegna þess að það hefur ekki verið svo mikið að frétta!

Fastelavn gekk vel fyrir sig, Jóel Kristinn fékk flottan sjóræningjabúning og gekk um sem vöðvastæltur sjónræningi og sló köttinn úr tunnunni og Fannar Ingi var í búningi úr Cars myndinni - og var því flottur kappakstursbílstjóri.  Allir borðuðu líka bollur og við fengum meira að segja saltkjöt og baunir á sprengidag - þannig að við fengum allan pakkann þó við séum hér í DK.

Hið daglega líf er í mjög föstum skorðum.  Jóel fer í skólann-SFO-springgymnastik-fótbolta og leikur sér við vini sína glaður með þetta allt.  Fannar Ingi fer í leikskólann og leikur sér sæll og glaður.  Helgi Kristinn mætir í ræktina, skólann og flýgur nýju fjarstýrðu þyrlunni sinni sæll og glaður.  Ég mæti í ræktina og reyni að skrifa lokaritgerðina mína sem fer hægt af stað - en mun vonandi hafast fyrir sumarið!

Við reynum svo að brjóta um hversdagleikann með skemmtilegheitum og vorum einmitt að koma úr frábærri sumarbústaðarferð þar sem við eyddum helginni með Þórunni, Jóa, Heiðrúnu Ósk, Sigurði Ragnari og Hildi Brynju á Vesturströnd Jótlands.  Börnin fengu sko heldur betur að njóta sín.  Við fórum í sund, spiluðum fótbolta, fórum í gönguferðir á ströndina (sem er svo stór að hún minnti næstum á eyðimörk - nema það var sjór ... ) fórum á skemmtilegan róló, spiluðum og umfram allt borðuðum góðan mat aftur og aftur... og aftur og aftur. 

Nú fyrir þá sem ekki muna setur Helgi stundum inn myndir úr símanum sínum hér: http://share.ovi.com/browse/mostrecent/member/hkh.
Það eru reyndar engar alveg nýjar myndir núna en mynd af tunnunni sem sett var upp hér á Fastelavns-festinu hér í götunni og keiluferð fjölskyldunnar og eitthvað svona.

Bestu kveðjur,

Feb 20, 2009

Allt eins og það á að vera!

Nú er letilífi og fríi lokið!!!!

Íslandsferðin varð að einni alsherjar matarveislu.  Náðum 17 matar-/kaffiveislum á 10 dögum auk nauðsynlegra heimsókna á KFC, Subway og American Style.
Þó svo að humarinn, lambakjötið, hjónabandssælan og allar hinar kræsingarnar hafi alveg verið ferðarinnar virði þá var það nú fólkið sem við náðum að hitta sem skipti mestu máli.  Náðum að knúsa flesta .... hefði nú viljað hitta sumar meira en svona er þetta bara þegar maður þeytist á milli staða non-stop í 10 daga þá nær maður því miður ekki öllum og flestum bara einu sinni - en sådan er det bare!

Fyrir strákana var toppurinn að komast í sund, á snjóþotu og í jeppann hans Gumma frænda auk þess að hitta ömmurnar og afana.  Jóel Kristinn fékk líka tækifæri til að hitta gömlu vini sína í Snælandsskóla þar sem hann fékk að vera með í 1. R hálfan dag og var mjög ánægður með það. Honum var líka boðið í heimsókn til Benedikts vinar síns sem var alveg frábært því hann er sko ekkert búinn að gleyma vinunum af Grænatúni.  Jóel Kristinn fékk líka tækifæri til að leika við hana Anítu sína og það tók ekki nema svona 1 - 2 mínútur áður en þau voru dottinn í leikgírinn eins og þau hefðu hist síðast í gær!

Núna er fríið búið!  Helgi Kristinn kominn á fullt í skólann aftur eftir að hafa náð mjög góðum árangri í janúarprófunum og ég er að reyna að koma mér af stað í ritgerðarvinnuna en ég er sem sagt búin að ljúka öllum fögunum og á bara ritgerðina eftir.

Framundan er mikið fjör.  Benta Vala gistir á laugardaginn og það er nú ávísun á action (hehe) og á sunnudaginn verður Fastelavn-hátíð í götunni þar sem börnin fara í búninga og slá köttinn úr tunnunni og á eftir verður boðið upp á fastelavns-boller, öl og aðra drykki.  Á mánudag verður svo fastelavn bæði á leikskólanum hjá Fannari og í skólanum hjá Jóel þannig að hér sé bara gaman.

Bestu kveðjur,

Jan 26, 2009

Letilíf

Jæja þá er prófatörninni lokið!!  Loksins, loksins, loksins....

Við sem sagt kláruðum sl. föstudag og tók letin við alveg um leið!  Við vorum svo heppin að nágrannar okkar buðu okkur í mat á föstudagskvöldið þannig að við þurftum hvorki að elda né hafa ofan af fyrir drengjunum þar sem allt var til alls í veislunni - matur og leikfélagar.  Við spiluðum auðvitað frameftir nóttu og entumst ótrúlega lengi miðað við hve þreytt við vorum.  Ég hafði t.d. vaknað kl. 05:10 um morguninn þar sem ég þurfti að leggja af stað kl. 06 um morguninn til Köben í prófið mitt!

Ég verð nú samt að nefna það sérstaklega að ég afrekaði að mæta með strákana á fótboltaæfingu kl. 09 á laugardagsmorgun !!!!  Þetta var auðvitað fótboltaæfingin hans Jóels en það mæta svo fáir strákar á æfingarnar þessar vikurnar að Fannari var boðið að vera með og stóð sig ótrúlega vel og brosti út að eyrum allan tímann!

Eftir að komið var heim af fótboltaæfingunni var ekki meira afrekað þann daginn!  Foreldrarnir voru einfaldlega of latir þannig að dagurinn leið án þess að það næðist að gera neitt af viti, ekki einu sinni að fara út í búð að versla í matinn ;-)  (McDonalds reddaði kvöldmatnum við miklar vinsældir drengjanna!)

Á sunnudaginn skruppum við fjölskyldan í keilu.  Strákarnir höfðu aldrei áður farið í keilu og skemmtum við okkur öll mjög vel.  Það er keilusalur hérna rétt hjá okkur og höfum við oft talað um að fara en aldrei látið verða af því fyrr en nú.  Þess má geta að úrslitin fóru þannig að Helgi burstaði keiluna, Jóel varð í 2. sæti , Fannar Ingi í 3. sæti eftir að hafa verið í 2. sæti lengst af en mamman sjálf rak lestina og átti víst aldrei minnstu von á verðlaunasæti :-(

Nú eru svo bara rólegheit framundan.  Lítið sem Helgi á að mæta í skólann þessa vikuna og ég þarf bara að vinna smá í rannsóknarspurningunni minni og vinnuáætlun fyrir mastersritgerðina. Þannig að stærstu verkefnin verða bara að mæta í ræktina og vera latur ... svona til skiptis 

Svo má minna einu sinni enn á að við erum að kíkja heim þann 6. febrúar... vona bara að það verði fleiri umræðuefni í boði en ástandið í landsmálunum!  Við sitjum hérna á refresh-takkanum á fréttamiðlunum og fylgjumst með............ en ég er bara of löt til að skrifa allt sem mér finnst...

Bestu kveðjur

Jan 16, 2009

Próflestrardagar

Nú snýst heimilislífið bara um próflestur foreldranna.  Ekki það að við séum alltaf að læra - nei nei alls ekki - við bara eigum alltaf að vera að læra eða erum að reyna að vera læra.... og stundum erum við að læra ;-) 

Ég var svo "heppin" að lenda á fyrsta mögulega prófadeginum í stærðfræðiprófinu mínu sem verður ansi erfitt!  Það er alltaf jafn erfitt að fara í þessi munnlegu próf og tala útlensku þar að auki en auðvitað reddast það nú samt (vonandi) það þarf bara að hafa fyrir því. Ég hef nú ekki verið dugleg við að halda einbeitingu eftir verkefnaskilin og er núna að vinna upp það sem ég ætlaði að gera á ca. 10 dögum fyrir próf svona síðustu 3 dagana..... prófið er sem sagt á mánudagsmorgun.  Seinna prófið mitt er á föstudagsmorgun en eftir það byrja ég bara í rólegheitunum að vinna í mastersritgerðinni minni.

Helgi er í rólegheitunum að undirbúa sig fyrir próf sem er næsta föstudag og þá er hann líka búinn í prófum.

Jóel Kristinn missti í fyrsta sinn daga úr skólanum en hann var lasinn heima í gær og í fyrradag. Þar sem við foreldrarnir vorum upptekin við að reyna að læra þurfti hann nú að sætta sig við lágmarksathygli allan daginn, horfa á sjónvarp og svoleiðis.  Til að gera þetta aðeins flóknara þá er tölvan okkar í viðgerð (þar sem allt barnaefnið og leikirnir eru) og Play Station tölvan ónýt ... en einhvern veginn komst fólk af áður en tölvurnar komu......... við erum bara búin að gleyma því hvernig börn léku sér fyrir tíma Play Station þannig að Helgi fór til nágrannanna og fékk leikjatölvuna þeirra lánaða .... hehe.   Jóel Kristinn var svo alsæll í morgun þegar hann fékk leyfi til að fara í skólann enda var afmælisveisla heima hjá einum bekkjarbróður hans.

Það er nú lítið að frétta af Fannar Inga, en engar fréttir eru jú góðar fréttir.  Hann er að minnsta kosti sæll og glaður á leikskólanum og alveg dauðþreyttur á kvöldin.  Í kvöld sofnaði hann t.d. í sófanum yfir Disney stundinni klukkan rúmlega sjö.

Annars er að styttast í Íslandsferðina - bara 3 vikur þangað til við komum og dagskráin alveg að verða þétt skipulögð - hehe! Jóel Kristinn ætlar meira að segja að heimsækja 1.R í Snælandsskóla en þar eru gömlu vinir hans úr leikskólanum. Þá getur hans aðeins fengið að sjá hvernig þetta er í íslenskum skóla á meðan mamma hans hangir á kennarastofunni og spjallar við allt samstarfsfólkið í skólanum.

Jæja best að fara að læra.... eða sofa,
Bestu kveðjur

Jan 8, 2009

Rútína á ný!

Hér gengur lífið sinn vanagang. 

Drengirnir alsælir að vera komnir í skólana sína aftur. Jóel Kristinn verður í því sama og á haustönninni þ.e. springgymnastik og fótboltanum sem er bara fínt. Í skólanum bætist smá við, þar sem að nú kemur dönskukennari inn í bekkinn 1 eða 2 sinnum í viku.  Þetta er kennarinn sem mun taka við bekknum næsta vetur en hér í DK er það oftast þannig að það er sérstakur börnehaveklasselærer og svo tekur dönskukennarinn við umsjóninni í 1. bekk sem er reyndar 2. bekkur á Íslandi.  Fljótlega kemur líka inn stærðfræðikennari sem mun svo halda áfram með bekkinn í stærðfræði næsta skólaár. Jóel fór líka í hefðbundna heimsókn til skólahjúkkunnar í vikunni og staðfesti hún að drengurinn bæði sjái og heyri vel er 120,5 cm og bara í góðu lagi að öllu leyti!

Fannar Ingi harðneitar að halda áfram í Boldspilinu þrátt fyrir að það hafi verið mjög fínt námskeið og við ætlum nú ekki að neyða drenginn til að halda áfram.  Þeir bræður hafa báðir verið að tala um að spila á hljóðfæri og kannski getum við fundið út úr því fyrir næsta vetur, skv. skyndikönnun á netinu eru nú samt engir námsmannaprísar í boði í tónlistarnáminu sem er rándýrt eins og á Íslandi - en þetta kemur bara í ljós. Fannar Ingi mun því láta leikskólann nægja en segist þá ætla í fótboltann þegar hann byrjar aftur fyrir hans aldur í vor.

Helgi fór í próf 3. janúar sl. og gekk bara fínt.  Nú er hann í rólegheitunum að undirbúa sig fyrir næsta próf, ekkert stress ennþá en það á eftir að koma.  

Ég skilaði öllum mínum verkefnum þ.e. 115 bls í 4 eintökum samtals 460 bls. á þriðjudagsmorgun. Nú býð ég bara eftir að fá að vita hvenær ég lendi í prófunum mínum en prófadagarnir eru frá 19. - 30. janúar.  Ég hef verið að nota tímann aðeins síðustu daga til að undirbúa mastersritgerðina mína en ef ég næ öllum prófum á þessari önn þá á ég bara ritgerðina eftir!  Í gærkvöldi áður en ég skrapp í átveislu með nágrannakonum mínum þá skrifaði ég niður þá hugmynd sem ég hef að efni og í dag sendi ég hana til þess kennara sem ég helst vildi fá sem leiðbeinanda og viti menn 5 mínútum seinna svaraði kennarinn mailinu og samþykkti bæði að verða leiðbeinandinn minn og að hugmyndin að efninu væri eitthvað sem vel væri hægt að nota! Þá þarf ég amk ekki að hafa áhyggjur af því!

Í gær héldum við Íslendingarnir í götunni þrettándagleðina okkar, eins og í fyrra söfnuðumst við saman og kveiktum bál, brenndum jólatré og skutum upp afganga af rakettum og börnin fengu stjörnuljós. 

Nú erum við fjölskyldan öll farin að hlakka til að koma til Íslands í vetrarfríinu (6. - 16. febrúar) við verðum nú eins og venjulega að skipuleggja tímann vel til að ná að hitta sem flesta. Jóel Kristinn er búinn að leggja inn pöntun fyrir snjó á Íslandi enda er víst lítið um svoleiðis hér hjá okkur - sáum samt nokkur korn um síðustu helgi og var þeim fagnað gríðarlega í þær klukkustundir sem snjórinn var.

Bestu kveðjur,

Jan 1, 2009

Gleðilegt ár!

Við fjölskyldan óskum ykkur öllum gleðilegs árs og hlökkum auðvitað til að hitta ykkur öll á nýju ári.

Við höfum haft það rólegt og gott yfir jólin.  Helgi hefur verið að læra fyrir próf og við strákarnir höfum bara verið að leika og slappa af.  Við fórum á jólaball hjá Íslendingafélaginu þar sem synir tónmenntakennarans fengu loksins að heyra og syngja íslensku jólalögin (tónlistaruppeldið eitthvað slappt á heimilinu um þessar mundir).  Þá skruppum við og kíktum á lífvarðaskipti hjá drottningunni sem var hér í Árósum yfir jólin.  Annars erum við bara búin að vera heima! 

Ég var nú eitthvað að læra og á morgun er það lokahnikkurinn - allt á að klárast um helgina.

Áramótin voru mjög skemmtileg hjá okkur.  Við borðuðum með Þórunni, Jóa og börnunum þeirra og það er sko aldrei leiðinlegt hjá okkur!!! Við vorum með kalkún í matinn - þvílíkt vel heppnað. Borðuðum auðvitað yfir okkur, vorum með ótrúlega góða forrétti og tvo desserta líka og magnið af matnum hefði dugað fyrir a.m.k. eina til tvær fjölskyldur í viðbót!  Við skutum auðvitað upp flugeldum um miðnætti og svo var bara tjúttað fram eftir öllu......... kannski aðeins of lengi miðað við að Helgi er að fara í próf á laugardagsmorgun!!

Nú er bara að koma sér í rútínuna aftur - drengirnir fara aftur í skóla á mánudaginn og þá verður að vera búið að koma svefntímanum í réttan farveg aftur.

Sem sagt allt gott héðan á nýju ári!